Umhverfisstefna

Markmið

Hjá Íslenskri myndgreiningu ehf. skal unnið markvisst að umhverfismálum.

Lögum og reglum um umhverfismál skal fylgt í rekstrinum.

Umhverfissjónarmið skulu höfð til hliðsjónar við ákvarðanir um starfsemi og rekstur.

Umhverfisvitun starfsfólks skal efld og það hvatt til þess að bera virðingu fyrir umhverfinu.

Umhverfismerktar vörur og þjónusta skal valin sé þess kostur.

Sóun skal haldið í lágmarki á öllum sviðum, þ.m.t. með  hagkvæmri notkun aðfanga og tækjabúnaðar.

Endurvinnanlegur úrgangur skal flokkaður þegar það er hægt.

Starfsumhverfi skal vera heilbrigt og gefandi.

Kolefnisspor fyrirtækisins  skal lágmarkað.

Aðgerðir

Vöruinnkaup

Við vöruinnkaup skal velja vörur með viðurkenndum umhverfismerkjum þar sem kostur er og taka tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ef þjónusta eða vörur eru sambærilegar ber að velja þann kost sem telst minnst skaðlegur umhverfinu. Dæmi:

Velja skal pappír með vistvæna vottun og draga úr pappírsnotkun eftir því sem kostur er.

Velja skal tölvu- og skrifstofubúnað með viðeigandi umhverfis- og orkusparandi merkingum þegar það er unnt.

Velja skal ræstivörur sem eru merktar með viðurkenndum umhverfismerkjum (t.d. Svansmerkinu).

Endurvinnsla

Lágmarka skal sóun, flokka endurvinnanlegan úrgang og skila til endurvinnslu í samræmi við settar reglur og aðrar leiðbeiningar. Öllum spilliefnum, svo sem rafhlöðum, prenthylkjum og ljósaperum, skal fargað á viðeigandi hátt.


Starfsfólk er hvatt til að prenta hvorki né ljósrita að óþörfu. Leitast skal við að endurnýta pappír og geyma skjöl frekar á rafrænu formi en pappír þegar það er hægt. Jafnframt skal draga úr notkun einnota aðfanga, svo sem borðbúnaðar.

Sorpflokkun

Sorpflokkun fer fram á eftirfarandi hátt:

Plast: Flokkað sérstaklega í viðeigandi ílát. Aðstaða til flokkunar er á öllum starfstöðvum og á kaffistofu. Tæmt daglega í endurvinnslugám.

Pappír: Flokkaður á starfsstöðvum þar sem unnið er með papír. Aðstaða til flokkunar pappírsumbúða á kaffistofu. Tæmt daglega í endurvinnslugám.

Spilliefni: Safnað og skilað á viðeigandi móttökustað.

Sóttmengaður úrgangur: Safnað í sérstaka poka og fargað hjá þriðja aðila.

Raftæki: Safnað og skilað á viðeigandi móttökustað til endurvinnslu.

Dósir og flöskur: Safnað og farið með í endurvinnslu.

Annað: Óendurvinnanlegum úrgangi er haldið í lámarki.

Sóun

Fara skal sparlega með vatn og orkuauðlindir, t.d. skal ekki láta vatn renna að óþörfu og slökkva á rafmagnstækjum og ljósum í lok vinnudags. Ennfremur skal fara sparlega með ræstiefni við uppþvott og ræstingar.

Samgöngur

Leitast er við að velja umhverfisvænar leiðir þegar ferðast er á vegum fyrirtækisins og samnýta ferðir þegar hægt er. Starfsfólk skal hvatt til að velja helst vistvæna ferðamáta til og frá vinnu.

Aðgengi er að hleðslustöðum fyrir starfsfólk og skjólstæðinga sem eru á rafbílum.

Sturtuaðstaða og hjólageymsla er í boði fyrir starfsfólk.

Leitast er við nota fjarfundi og netnámskeið eftir því sem kostur er.

Kolefnisspor, aðgerðir og markmið

Heildarmarkmið ÍM er að draga úr kolefnisspori fyrirtækisins um 15% innan næstu 3 ára miðað við 2023, þegar heildarlosun var 24,9 tonn CO₂-ígildi. Markmiðið er að ná kolefnisspori niður í 21,2 tonn CO₂-ígildi á þeim tíma.

Áætlanir og aðgerðir

  • Samgöngur starfsfólks
  • Markmið: Lækka losun sem hlýst af ferðum starfsfólks til og frá vinnu um 20% á næstu þremur árum.
  • Aðgerðir:
  • Auka möguleika á fjarvinnu þar sem við á.
  • Hvatar til starfsfólks til að nýta sér vistvæna ferðamáta, s.s. almenningssamgöngur, hjól eða rafbíla.
  • Grænn samgöngusamningur til að styðja við bíllausa ferðamáta.
  • Áætluð minnkun: 2,5 tonn CO₂-ígildi.
  • Úrgangur og aðföng
  • Markmið: Draga úr losun frá aðföngum og úrgangi um 10%.
  • Aðgerðir:
  • Endurskoða innkaup, með sérstakri áherslu á einnota heilbrigðisvörur, og auka hlutfall umhverfisvænna vara.
  • Bæta enn flokkun og endurvinnslu á úrgangi.
  • Minnka enn notkun á pappír og prentun í starfseminni.
  • Áætluð minnkun: 0,3 tonn CO₂-ígildi.
  • Fræðsla og þátttaka starfsfólks
  • Markmið: Virkja starfsfólk í umhverfisstarfi fyrirtækisins.
  • Aðgerðir:
  • Árlegur fræðslufundur um umhverfisáhrif og ábyrgð.
  • Þátttaka starfsfólks í umhverfisátökum, s.s. hvatning til að fylgja góðum umhverfisvenjum í daglegum störfum.
  • Birting umhverfismarkmiða opinberlega
  • Aðgerð: Birt umhverfisstefnu opinberlega á heimasíðu fyrirtækisins.